Forvarnarsjóður Kópavogs

Markmið Forvarnarsjóðs er að veita einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum styrki til verkefna sem hafa það að leiðarljósi að efla forvarnir, heilsu og vellíðan Kópavogsbúa.

Styrkir úr sjóðnum skulu eingöngu veittir til verkefna með að minnsta kosti eina af eftirtöldum áherslum:

Verkefni tengt lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna
Verkefni sem stuðla að vellíðan, skilningi á samfélagi, umhverfi og virðingu fyrir fjölbreytileikanum
Forvarnir og heilsuefling í þágu barna og unglinga
Forvarnir í þágu eldra fólks
Bætt lýðheilsa
Verkefni sem tengjast grunnstoðum barnasáttmálans 2.gr., 3.gr.,6.gr. og 12.gr.
Verkefni sem innifela samstarf íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í þágu forvarna

Ekki er veittur styrkur til reglubundins reksturs eða reglubundins launakostnaðar eða til sama verkefnis oftar en einu sinni nema sérstakur rökstuðningur fylgi.

Umsóknum skal skila eigi síðar en 17. apríl 2024.

Bent er á að eingöngu er hægt að sækja um styrk á heimasíðu Kópavogsbæjar, kopavogur.is, inn á þjónustugátt

Frekari upplýsingar um Forvarnarsjóð Kópavogs veita Amanda K. Ólafsdóttir, deildarstjóri frístundadeildar (amanda.olafsdottir@kopavogur.is) og Ragnheiður Hermannsdóttir, deildarstjóri grunnskóladeildar (ragnheidur@kopavogur.is)

Posted in Fréttir.