Heilsudagar fóru fram í Álfhólsskóla dagana 16. og 17. apríl. Dagskráin var afar fjölbreytt að vanda og tóku nemendur og starfsfólk þátt í fjölbreyttum heilsutengdum verkefnum.
Yngsta stigið fór m.a. í heimsókn upp í Gerplu og í gönguferð á Víghól en einnig var boðið upp á ýmsar hreyfi og/eða heilsutengdar stöðvar víðsvegar um skólabygginguna sem nemendur skiptust á að fara í.
Miðstigið fór m.a. í skautahöllina í Laugardalnum, í frisbígolf í Kópavogsdalnum, í pílu og bandý og tók þátt í Álfhólsleikunum í íþróttahúsinu ásamt því að vera í útileikjum.
Unglingastigið fékk fræðslu um skyndihjálp og næringarfræði. Fjölbreyttar stöðvar voru í boði tengt hreyfingu og heilsu í skólanum sjálfum en einnig fór nemendur í íþróttahúsið í lyftingar og pílu.
Dagarnir tókust afar vel og eiga nemendur og starfsfólk þakkir skyldar fyrir virkni og jákvæðni. Sérstakar þakkir færum við þeim sem tóku á móti okkur og/eða heimsóttu í skólann með fræðslu hvers konar.
Myndir eru væntanlegar á fésbókarsíðu skólans.
