Miðvikudaginn 20.maí fóru 20 stelpur í 9.bekk á viðburðinn „Stelpur, stálp og tækni 2026“ sem haldinn er í Háskóla Reykjavíkur. Háskólinn í Reykjavík hvetur konur til náms í tæknigreinum og liður í því er verkefnið Stelpur, stálp og tækni. Markmiðið er að vekja áhuga þeirra á ýmsum möguleikum í tækninámi og störfum, brjóta niður staðalímyndir og sýna þeim fjölbreytileikann sem einkennir tækniiðnaðinn.
Fyrri hluta dags sóttu stelpurnar tvenns konar fyrirlestra í húsakynnum HR. Annars vegar fyrirlestur um sálfræði og tækni og hins vegar gervigreind og lögfræði. Í hádeginu var svo boðið uppá Dominos pizzu og sódavatn. Eftir hádegi fóru stelpurnar í heimsókn til EFLU verkfræðistofu sem er staðsett á Lynghálsi 4. Þar var starfsemi kynnt og fengu stelpurnar einnig að prófa ýmsa hluti sem starfsfólk EFLU notar. Allt gekk eins og í sögu og voru stelpurnar algjörlega til fyrirmyndar.
Föstudaginn 22.maí fara svo strákarnir okkar á viðburðinn „Strákar, stálp og tækni 2026″ en öllum strákum og stálpum úr 9. bekkjum grunnskóla höfuðborgarsvæðisins er boðið í heimsókn í Háskólann í Reykjavík þar sem þau fá fræðslu frá kennurum, nemendum og aðilum úr atvinnulífinu.
