Það er gaman að segja frá því að 21. maí sl. fékk STARFAMESSA Álfhólsskóla viðurkenningu frá Heimili og skóla. Meðfylgjandi myndir voru teknar af því tilefni þegar fulltrúar stjórnar FFÁ og Sigrún skólastjóri tóku á móti viðurkenningunni.
Verkefnið er leitt af Möllu námsráðgjafa í samstarfi við foreldra þar sem kallað er eftir sjálfboðaliðum úr foreldrasamfélaginu og nærumhverfi til að vera með bás þar sem ólík störf og námsleiðir eru kynntar nemendum í 9. og 10. bekk. Samhliða vinna nemendur verkefni og spyrja spurninga.
Þátttaka foreldra hefur aukist jafnt og þétt síðustu ár og fjölbreytnin er mikil. Starfamessan eflir enn frekar og styður við gott samstarf heimilis og skóla, ásamt því að veita nemendum innsýn inn í ólík störf og menntunarmöguleika sem nýtist þeim vel í þeirra eigin vegferð og framtíð.
Til hamingju Álfhólsskóli og foreldrar!
Hópmynd HÉR
