Mánudaginn 11. maí fór fram skákmót á miðstigi þar sem alls 33 keppendur tóku þátt. Þátttakan var virkilega góð og mikil stemning meðal keppenda. Nemendur stóðu sig með prýði og sýndu bæði mikla einbeitingu og góða íþróttamennsku.
Björn Jósef sigraði með fullt hús eða 5 vinninga í 5 umferðum. Í 2.sæti kom James en þrír þátttakendur deildu með sér 3.sætinu, þeir Andri, Elías og Leon.
Þriðjudaginn 12.maí fór svo fram skákmót á unglingastigi en þar voru alls 10 keppendur. Á unglingastiginu voru 9 umferðir leiknar en um var að ræða hörkuspennandi viðureignir þar sem þrír efstu voru hnífjafnir á stigum. Patrekur, Quan M og Unnar náðu allir 8 vinningum í 9 umferðum. Eftir bráðabana var það Quan M sem stóð upp sem sigurvegari.
