Lokaverkefni 10.bekkinga

Föstudaginn 29.maí sl.luku 10.bekkingar við lokaverkefnin sín. Þetta er umfangsmikið verkefni sem krefst undirbúnings, og hefur hann staðið yfir frá því í febrúar þar sem nemendur byrjuðu að huga að því hvað þau vildu gera, með hverjum og svo framvegis. Þau skiluðu svo inn umsókn um lokaverkefni í lok febrúar/byrjun mars sem við kennarar þurftum að samþykkja. Hvert verkefnið væri, hvert væri gagnið í því, hver væri afurðin o.s.frv. Hverjum hóp var svo úthlutaður leiðbeinandi. Hlutverk leiðbeinanda var að hvetja nemendur áfram, benda á ef einhver hluti verkefnisins var vanræktur, hvetja þá til að fylgja skipulagi og að lokum meta vinnuna.

Vinnan sjálf hófst svo 21.maí. Hluti af verkefninu var að gera nákvæmar áætlanir fyrir hvern dag og halda dagbók þar sem fram kom hvernig verkinu miðaði á degi hverjum og hvort breyta þyrfti áætlun. Nemendur áttu að mæta á bókasafn og skrá sig inn og út á hverjum morgni ásamt því að finna fundartíma með leiðbeinendum daglega. Að öðru leyti mátti vinnan fara fram hvar sem þeir kusu. Ýmislegt er metið til lokaeinkunnar verkefnis – meðal annars afurðin sjálf, frumkvæði, sjálfstæði, samvinna við leiðbeinanda og hvort annað, skipulag, dagbókin, frumleiki, kynningin á sviðinu, hvernig tekið var á móti gestum á sýningunni o.fl.

Mánudaginn 1.júní, var svo komið að uppskeruhátíðinni. Nemendur stigu á svið, kynntu verkefnin sín fyrir samnemendum og hvöttu áhorfendur til að koma og skoða afurð verkefnisins. Eftir það opnuðu sýningarbásar nemenda þar sem þau tóku á móti bæði foreldrum og yngri nemendum til að sýna og segja nánar frá verkefnunum sínum – sem voru bæði margvísleg og metnaðarfull.

Posted in Fréttir.