Kærleikskaffihús Álfhólsskóla

Dagana 6. – 9. desember er Kærleikskaffihús hjá okkur í Álfhólsskóla á sal skólans í Hjalla.

Á kærleikskaffihúsi hittast vinabekkirnir/árgangar, borða saman vöfflur með sultu og rjóma og drekka heitt súkkulaði við kertaljós. Jólatónlist ómar um salinn, vöfflulykt í loftinu og dásamlegur jólaandi yfir öllu.

Yngri nemendurnir syngja jólalög en þau eldri lesa jólasögu.
Starfsmenn skiptast á að baka vöfflur og þjóna til borðs.

Posted in Fréttir.