Erfiðustu spurningarnar koma ekki á prófi. Horfum til þeirrar hæfni sem framtíðin þarfnast.

Á dögunum var haldið málþing á vegum KÍ um mikilvægi list- og verkgreinar og dýrmætt gildi þeirra í almennu námi.  Málþingið var mjög vel sótt af fulltrúum allra skólastiga, kennurum og stjórnendum, menningar- og menntamálaráðuneytis, sambandi íslenskra sveitafélaga, atvinnulífins o.fl.   Meðal þeirra sem ávörpuðu samkomuna voru Dr Linda Nathan frá Boston Arts Academy, Menntamálaráðherra – Illugi Gunnarsson, Sölvi Sveinsson skólastjóri Landakotsskóla, Unnur Óttarsdóttir myndþerapisti, Ólafur Stefánsson fyrrverandi handboltamaður ofl.
Í pallborði sátu einnig Elías Arnar Hjálmarsson nemi í Borgarholtsskóla og  Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Málþingið var hvergi nærri tæmandi fyrir svo stórt málefni, en var fræðandi og skemmtilegt og gerður góður rómur að innihaldi þess og skipulagi.  Greinilegt var að þátttakendur voru sammála um mikilvægi list- og verkgreina og eflingu þeirra í menntakerfinu og er málþingið tekið sem fyrsta skref í áframhaldandi vinnu.

Ýmis sýnishorn frá nemendum voru á málþingi.  Hér má sjá nokkur dæmi; myndir af fingrabrúðum frá textílvinnu grunnskólanemenda, óskahylkjum framtíðar frá smíði og hönnun og auk þess kom kammersveit frá Skólahljómsveit Kópavogs og skemmti gestum. Nokkrar myndir af þessu ágæta málþingi.

Lesa meira:

http://ki.is/pages/22/NewsID/4962

Posted in Eldri fréttir.