oskudagur12

Öskudagur í Álfhólsskóla

oskudagur12Öskudagsgleði í Álfhólsskóla var haldin hátíðleg í dag 22.febrúar 2012.  Mjög öflug dagskrá var skipulögð á ýmsu stigum skólans.  Fáránleikar fóru fram á unglingastigi þar sem nemendur öttu kappi í limbó, bimbó, teygjubyssuskotfimi svo eitthvað sé nefnt.  Á miðstiginu bar hæst leikurinn „raðaðu kennaranum saman“ en það var keppni milli bekkja og var sá leikur mjög skemmtilegur.  Á yngsta stiginu var áherslan lögð á dansa og leiki ásamt því sem kötturinn var sleginn úr tunnunni.  Nemendur og starfsfólk mættu að sjálfsögðu í öskudagsbúningum í skólann. Foreldrafélagið gaf síðan öllum nammi eftir daginn.  Hér eru myndir frá deginum.

 

http://www.flickr.com/apps/slideshow/show.swf?v=109615

Posted in Eldri fréttir.