Skólakór Álfhólsskóla

Nú hefur verið sendur póstur á foreldra barna í 2-7. bekk um skráningu í kór Álfhólsskóla. Við hvetjum ykkur til að skoða póstinn og skrá börnin ykkar ef þau hafa áhuga.

 Kórastarfið hefst í vikunni 13.-17.september næstkomandi og eru æfingatímar eftirfarandi :

 2. – 4. bekkur: Mánudagar kl. 13:25 – 14:05 í tónmenntastofu Digranesi.

5.- 7.  bekkur: Fimmtudagar kl: 14:00 – 14:45 í matsal Hjalla. 

Posted in Fréttir.