Stelpur og tækni

Stelpur og tækni dagurinn (Girls in ICT Day) var haldinn í sjöunda sinn á Íslandi þann 20.maí síðastliðinn. Dagurinn er haldinn víða um heim á ITU (International Telecommunication Union), samtökum um upplýsinga- og samskiptatækni innan Sameinuðu þjóðanna.

Hugmyndin með deginum er að kynna ýmsa möguleika í tækninámi sérstaklega fyrir stelpum í 9.bekk grunnskóla og opna þannig augu þeirra fyrir framtíðarmöguleikum sem tæknigreinar bjóða.

Undanfarin ár hefur stelpum í 9. bekk nokkurra grunnskóla verið boðið að koma í HR og taka þátt í tveimur vinnustofum og að því loknu fengið að heimsækja helstu tæknifyrirtæki landsins. Þar hafa þær hitt kvenfyrirmyndir í faginu og fengið að kynnast þeim tækifærum sem eru í tæknigeiranum.

Í ár þurfti að aðlaga viðburðinn að aðstæðum í samfélaginu og var hann því haldinn „online“ í staðinn.

Sameiginlegri dagskrá var streymt til allra þátttökuskólanna og að henni lokinni var boðið upp á tvær vinnustofur, annars vegar í WordPress og hins vegar í Sonic pi (tónlistarforritun).

Allar stelpurnar í 9.bekk tóku þátt í þessum viðburði hjá okkur í Álfhólsskóla og stóðu sig með prýði. Þetta var virkilega skemmtilegur og lærdómsríkur dagur hjá okkur í Álfhólsskóla.

 

Posted in Fréttir.