Sigraði söngkeppnina

Þann 7. febrúar var Söngkeppni Félagsmiðstöðva Kópavogs haldin í Salnum, Hamraborg.
Bryndís Bergmann Oddsdóttir nemandi Álfhólsskóla tók þátt fyrir hönd Pegasus með frumsamda laginu sínu Lost og gerði sér lítið fyrir og sigraði keppnina.
Þá er bara næst á dagskrá að keppa á söngkeppni Samfés í Laugardalshöll 24.mars næstkomandi. Þar mun hún etja kappi við allar félagsmiðstöðvar landsins.

Til hamingju með sigurinn elsku Bryndís, þú áttir þetta svo sannarlega skilið!​

Posted in Fréttir.