11.-15. desember voru nemendur á yngra stigi með kaffihús í matsalnum. Þá mætti einn árgangur á dag í skreyttann salinn og nemendur fengu piparkökur og heitt súkkulaði. Piparkökurnar bökuðu þau sjálf í heimilisfræði vikurnar á undan. Gyða deildarstjóri yngsta stigs brá sér ýmist í hlutverk Fjólu Bjólu Leiðindaskjóðu eða Jólasveinku og sagði nemendum sögur. Þeir hópar sem voru í leiklist og tónmennt á meðan sáu um skemmtiatriði. Allir skemmtu sér vel og áttu notalega stund saman eins og sjá má á myndunum sem voru teknar þessa daga.
![Jolapiparkokur](https://alfholsskoli.is/wp-content/uploads/sites/5/2010/12/Jolapiparkokur-720x380.png)
Jólakaffihús
Posted in Eldri fréttir.