Kærleikskaffihús er starfrækt í Álfhólsskóla á aðventunni. Þar er boðið uppá nýbakaðar vöfflur. Nemendur í vinabekkjunum komu saman og eiga mjög hátíðlega og vinarlega stund saman í salnum í Hjalla. Yngri börnin syngja kærleikslag fyrir þau eldri sem lesa kærleiksögu fyrir yngri börnin. Í morgun komu fyrstu hóparnir og tókst mikill kærleikur með öllum í hópnum. Vinarleg tónlist var spiluð á meðan vöfflurnar voru snæddar og að sjálfsögðu var rjómi með. Hér eru fleiri myndir úr kaffihúsinu.