Dagur vináttunnar

Dagur vináttunnar var haldinn hátíðlegur í Álfhólsskóla í dag, 8.nóvember. Í morgun hittust vinabekkir eldri og yngri nemenda þar sem þeir ýmist fóru í leiki eða spiluðu. Í kjölfarið fóru nemendur og sóttu elstu leikskólabörnin í nærumhverfinu. Saman gengum við svo öll í skrúðgöngu gegn einelti í íþróttahúsið í Digranesi. Þar var svo skemmtileg dagskrá í tilefni dagsins. Nemendur voru fyrirmyndar áheyrendur og skemmtikraftar og erum við ákaflega stolt af þeim.

Fleiri myndir má finna á facebook síðu skólans.

Posted in Fréttir.