Sumarlokun skrifstofu

Við óskum nemendum, foreldrum, starfsmönnum og öllum velunnurum skólans gleðilegs sumars og minnum á að skrifstofa skólans verður lokuð frá og með fimmtudeginum 16. júní. Við opnum aftur miðvikudaginn 3. ágúst.
Áríðandi skilaboð til skólans er hægt að senda á netfangið alfholsskoli@kopavogur.is og verður þeim svarað eins fljótt og unnt er.
Sumardvöl Frístundar opnar mánudaginn 8. ágúst fyrir þá nemendur verðandi 1.bekkjar sem hafa verið skráðir sérstaklega í sumardvöl á íbúagátt Kópavogs.
Nánari tímasetningar og upplýsingar um skólabyrjunina verða settar á heimasíðuna föstudaginn 5. ágúst.
Skólasetning verður þriðjudaginn 23. ágúst

Posted in Fréttir.