Skólabyrjun

Skólastarf hefst að nýju í Álfhólsskóla þriðjudaginn 25. ágúst.

Ljóst er að Covid-19 er komið til að vera og því verður skólastarf í vetur að taka mið af því.

Við munum ávallt vinna í samræmi við og fylgja fyrirmælum almannavarna og sóttvarnalæknis auk þess sem við vinnum með Menntasviði Kópavogs líkt og síðasta vetur.

Ýmsar ráðstafanir eru gerðar innan skólans m.a. til að tryggja 2 metra reglu meðal starfsfólks, en einstaklingar fæddir 2005 og síðar eru undanþegnir fjarlægðar- og fjöldatakmörkunum.

Ef aðstæður breytast munum við bregðast við og takast á við þær eins vel og við getum og upplýsum þá foreldra um breytingar á kennslu og/eða skólastarfi ef til þess kemur.

Skólaboðun í 1.bekk

Umsjónarkennarar munu boða foreldra og nemendur í viðtal.

Skólasetning hjá 1.bekk verður miðvikudaginn 26. ágúst kl. 08:10 á sal skólans í Digranesi og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá að henni lokinni. Vegna aðstæðna eru foreldrar beðnir um að fylgja nemendum ekki á skólasetninguna og kveðja þá við anddyri skólans.

Til stóð að halda kynningarfund fyrir foreldra nemenda í 1.bekk núna í haust en í ljósi aðstæðna getum við ekki boðið foreldrum til okkar sem stendur. Foreldrar barna í 1.bekk munu því fá sendar upplýsingar þar sem farið verður yfir hagnýt atriði er snúa að því að hefja nám í grunnskóla sem og upplýsingar um stoðkerfi skólans um mánaðarmótin.

Skólasetning

Þriðjudaginn 25. ágúst er skólasetning í kennslustofum fyrir nemendur í 2.-10.bekk. Í ljósi aðstæðna geta foreldrar ekki fylgt nemendum á skólasetninguna að þessu sinni. Umsjónarkennarar verða með stuttar haustkynningar fyrir nemendur þar sem farið verður yfir starf vetrarins. Umsjónarkennarar senda glærur/samantekt heim til foreldra að kynningu lokinni. Nemendur í 1.bekk mæta á skólasetningu kl. 08:10 þann 26. ágúst. 

  • 2.- 4. bekkur, kl. 08:30 – 09:30
  • 5.- 7. bekkur, kl. 10:00 – 11:00
  • 8.- 10. bekkur, kl.11:00 – 12:00

 

Frístund – Álfhóll

Opið er fyrir umsóknir í frístundina Álfhól í gegnum Mínar síður hjá Kópavogsbæ. Fyrirspurnir varðandi frístundina má senda á netfangið alfholl@kopavogur.is .

Foreldrum er velkomið að hafa samband við skólann ef eitthvað er óljóst eða ef einhverjar spurningar vakna varðandi skólastarfið í vetur.

Posted in Fréttir.