Kópurinn 2019

Kópurinn, viðurkenningar menntaráðs Kópavogs fyrir framúrskarandi grunnskóla- og frístundastarf í Kópavogi, var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum fimmtudaginn 16. maí. Alls bárust tuttugu tilnefningar til menntaráðs og voru veittar fimm viðurkenningar fyrir verkefni sem þóttu fela í sér umbætur eða leiða til framfara í skóla og frístundastarfi. Álfhólsskóli fékk fjórar tilnefningar og tvær viðurkenningar á athöfninni.

Sigrún Erla Ólafsdóttir, ásamt Önnu Pálu Gísladóttur og Elísabetu Jónsdóttur, fengu viðurkenningu fyrir verkefni sitt Öll sem eitt – skólamenningaráætlun Álfhólsskóla. Skólamenningaráætlun tekur til alls skólasamfélagsins. Hún birtist og kemur fram í öllum hliðum skólastarfsins. Í grunninn snýst hún um það að við sem lærdómssamfélag erum öll að vinna að sameiginlegum markmiðum – öll sem eitt. Rannsóknir sýna að vinna með allt skólasamfélagið í heild sinni reynist árangursríkasta leiðin til þess að takast á við og koma í veg fyrir einelti. Aðgerðir gegn einelti þurfa því að beinast að skólanum sem samfélagi fremur en að einstökum börnum. Mikilvægt að vinna með allan hópinn og skapa jákvæða skólamenningu og liðsheild þar sem allir upplifa að þeir séu mikilvægur hluti af hópnum, eigi sér hlutverk og tilgang. Mikilvægt er að gera skólann og námið skemmtilegt með fjölbreyttum kennsluháttum, efla núvitund, sjálfsmynd og seiglu, styrkja vináttu og traust. Skólamenningaráætlun er leiðarvísir um leiðir til að ná þessum sameiginlegu markmiðum með því að efla jákvæða skólamenningu og skólabrag.

Donata H. Bukowska kennsluráðgjafi Álfhólsskóla í málefnum nemenda með annað móðurmál en íslensku og Halldór Hlöðversson forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Kjarnans hlutu viðurkenningu fyrir verkefni sitt Velkomin Prógramm, sem miðar að því að virkja ungmenni með annað móðurmál en íslensku í frístunda- og félagsstörfum. Verkefnið spannaði nokkra daga sitt hvoru megin við sumarfrí þar sem unglingum úr 7. – 9. bekk voru kynnt starfsemi félagsmiðstöðva og þau frístundatilboð sem þeim býðst í Kópavogi. Lögð var áhersla á félagslega þáttinn, virkni og þátttöku en einnig á menningar- og tungumálanám. Unglingarnir gerðu ýmislegt saman til að kynnast hvort öðru og starfsemi félagsmiðstöðvanna. Þau fóru t.d. í heimsókn á bæjarskrifstofur, fóru í morgunbíó, grilluðu saman, fóru í frisbý golf í Fossvogsdal, sigldu á bátum frá Siglingaklúbbnum, fóru í Lazer-tag og gönguferðir svo fátt eitt sé nefnt. Þetta verkefni skilaði glöðum unglingum sem fóru að taka virkari þátt í starfi félagsmiðstöðvarinnar sinnar.

Við erum ákaflega stolt af þessum mikla mannauði okkar í Álfhólsskóla.

Posted in Fréttir.