Ljóðstafur Jóns úr Vör 2019

Ljóðstafur Jóns úr Vör var afhentur í 17. sinn við hátíðlega athöfn í Salnum á afmælisdegi skáldsins þann 21. janúar. Alls bárust 302 ljóð í keppnina en jafnframt voru úrslit í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs kunngjörð en 170 ljóð bárust frá grunnskólabörnum.
Handhafi Ljóðstafsins árið 2019 er Brynjólfur Þorsteinsson sem fæddur er 1990 en um ljóð hans Gormánuður segir dómnefnd m.a.: „…dregur fram íslenskan hversdag sem birtist dularfullur og margræður, þar sem samruni náttúru og líkama myndar óljós og áhugaverð mörk milli heima“. Dómnefnd skipuðu Bjarni Bjarnason formaður, Ásdís Óladóttir og Ásta Fanney Sigurðardóttir.
Í öðru sæti var Margrét Lóa Jónsdóttir fyrir ljóðið Allt sem lifir deyr og þriðja sætið hlaut Elías Knörr fyrir ljóðið Sunnudögum fækkar með sérhverri messu!
Sérstaka viðurkenningu hlutu auk þess ljóðskáldin Eyrún Ósk Jónsdóttir, Dagur Hjartarson, Arndís Þórarinsdóttir, Vilhjálmur B. Bragason, Hjörtur Marteinsson og Björk Þorgrímsdóttir.

Ljóðakeppni grunnskólanna

Hlutskörpust í grunnskólakeppninni var Katrín Valgerður Gustavsdóttir sem var verðlaunuð fyrir ljóðið Súðavík en hún er nemandi í 10. bekk Kárnsesskóla. Í öðru sæti var nemandi í 6. bekk Hörðuvallaskóla, Örn Tonni Ágústsson Christensen fyrir ljóðið Englar og í þriðja sæti Margrét Hrönn Róbertsdóttir í 10. bekk Kársnesskóla fyrir ljóðið Hæ. 
Þá hlutu sjö nemendur sérstaka viðurkenningu en þau eru: Daníel Ingi Þorvaldsson 5. EP Snælandsskóla, Elmar Daði Ívarsson 6. L Hörðuvallaskóla, Emilíana Unnur Aronsdóttir 9.X Kársnesskóla, Hrefna Lind Grétarsdóttir í 7. A Álfhólsskóla, Margrét Hrönn Róbertsdóttir í 10. H Kársnesskóla, Snorri Sveinn Lund í 6. L Hörðuvallaskóla og Urður Matthíasdóttir í 9. Krækilingi Vatnsendaskóla. 
Við athöfnina fluttu Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran og Guðrún Dalía Salomónsdóttir píanóleikari lög Þorkels Sigurbjörnsson við ljóð Jóns úr Vör.

Posted in Fréttir.