Starfamessa foreldrafélagsins

Árið er 2028 ! Þeir sem voru unglingar 2018 eru komnir út a vinnumarkaðinn. Við hvað starfa þeir?

HVAÐ? Starfamessa er tækifæri fyrir unglinga í 8. – 10. bekk að kynnast fjölbreyttum valkostum í námi og margvíslegum störfum.

HVERS VEGNA?
• Tengja við pælingar unglingana um framtíðarnáms- og starfsval.
• Ala á forvitni um fjölbreytni og starfa á vinnumarkaði.
• Taka þátt í skólastarfi og styðja við uppbyggingu á náms- og starfsfræðslu.

HVERJIR? Allir foreldrar!

AF HVERJU AÐ TAKA ÞÁTT? 
Foreldrar eru miklir áhrifavaldar þegar kemur að náms- og starfsvali barna sinna. Það skiptir máli að unglingar séu fræddir um fjölbreytni náms og starfa til að sjá fyrir sér framtíðarnámsleið og starfsvettvang. Hér er einnig gott tækifærið til að styrkja samstarf heimila og skóla.

UNDIRBÚNINGUR: Hafa gaman af því að spjalla um starfið sitt og svara spurningum.

HVENÆR OG HVERSU LENGI? 
Föstudaginn 7. desember frá kl. 9 – 11.
Hver árgangur hefur um 40 mínútur til að fara á milli fólks til að spjalla og fræðast.

Því fleiri þátttakendur úr hópi foreldra því skemmtilegra verður þetta!

TILKYNNA ÞÁTTTÖKU!
Vinsamlega tilkynnið þátttöku með því að fara á eftirfarandi slóð og fylla út eyðublaðið – https://goo.gl/forms/nehu3SUyOMb8Sjfz1

Haft verður samband á mánudaginn með nánari upplýsingar.

Posted in Fréttir.