Skólakór

Skólakórinn er fyrir nemendur á yngsta stigi og miðstigi skólans en undir kórinn heyra þrír kórhópar; 1. – 2. bekkur, 3. – 4. bekkur og 5. – 7. bekkur. Skólakórinn kemur fram á jóla- og vortónleikum, við ýmis tilefni innan skólans, auk annarra tilfallandi verkefna. Í Skólakórnum er sungin tónlist af ýmsum toga en markmið starfsins er að efla söng nemenda, framkomu, tónlistarþekkingu, nótnalestur og raddbeitingu.

Æfingatímar eru eftirfarandi:
1. – 2. bekkur: Mánudagar kl. 14:30 – 15:15 í Digranesi.
3. – 4. bekkur: Fimmtudagar kl. 14:30 – 15:30 í Digranesi.
5. – 7. bekkur: Föstudagar 14:30 – 15:30 í Hjalla.

Allir eru velkomnir til þátttöku í Skólakór Álfhólsskóla og hlökkum við til að sjá sem flesta. Kórstýrur eru Silja Garðarsdóttir og Svanfríður Hlín Gunnarsdóttir.
Skráning nemenda í Skólakórinn fer fram hér.

 

Posted in Fréttir.