Vinnum saman – Uppskeruhátíð

Í dag var uppskeruhátíð í skólanum er verkefninu Vinnum saman lauk.  Í heildina tókst verkefnið með miklum ágætum.  Verkefnið náði til nemenda miðstigs og blönduðust nemendur milli bekkja og árganga.  Margvísleg nálgun nemenda um viðfangsefni allt frá því að vinna að eftirlíkingu á Kínamúrnum, fjalla um menningu hinna ýmsu landa en þemað var einmitt ólíkir menningarheimar.  Mörg frumleg verkefni litu dagsins ljós s.s. spil, spurningar um lönd og staðreyndir, fjárhættuspil, kynning á skemmtigörðum, smíði á musteri, umfjöllum um dýr á framandi stöðum, píramítar, púsluspil o.fl. Nemendur buðu foreldum sínum og glöddust allir yfir góðum árangri.  Skemmtileg vinna og allt í þágu ólíkra menningaheima.  Hér eru myndir af deginum okkar.
Posted in Fréttir.