Innritun nýrra nemenda skólaárið 2017

Grunnskólar Kópavogs
Innritun í grunnskóla Kópavogs fyrir skólaárið 2017 – 2018
Innritun 6 ára barna (fædd 2011) fer nú alfarið fram í gegnum íbúagátt á vef bæjarins https://ibuagatt.kopavogur.is
Opnað verður fyrir skráningu 1. mars 2017 og stendur hún til 8. mars.
Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast milli skólahverfa og þeirra sem flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum.
Haustið 2017 munu skólar hefjast með skólasetningardegi þriðjudaginn 22. ágúst. Nánari upplýsingar um skólabyrjun munu birtast á heimasíðum skólanna.
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í einkaskólum eða grunnskólum annarra sveitarfélaga er til 1. apríl og skal sækja um á íbúagátt Kópavogs. Sækja þarf um að nýju fyrir nemendur, sem nú eru í slíkum skólum, ef gert er ráð fyrir að þeir verði þar næsta vetur.
Menntasvið Kópavogsbæjar
Posted in Fréttir.