Álfhólsskóli Norðurlandameistari í fyrsta sinn!

Skáksveit Álfhólsskóla varð í dag Norðurlandameistari barnaskólasveita á móti sem fram fór í Helsinki um helgina. Sveitin hlaut 15 af 20 vinningum. Í öðru sæti varð sveit Noregs og Danir náðu 3. sætinu. Mótið var mjög spennandi og úrslit fengust ekki fyrr en í síðustu skákum síðustu umferðar. Álfhólsskóli gerði jafntefli 2-2 í 1. og 2. umferð mótsins við sveitir Noregs og Finnlands. Sveitin vann svo sveit Dana 3-1 í 3. umferð og vann loks bæði B sveit Finna og sveit Svía 4 -0 í umferðum 4 og 5.Skáksveit Álfhólskóla skipuðu: 1. borð Dawid Kolka (4 vinninga af 5) 2. borð Felix Steinþórsson (4.5 vinninga af 5) 3. borð Guðmundur Agnar Bragason (3 vinninga af 5) 4. borð Oddur Þór Unnsteinsson (3.5 vinningar af 5) Halldór Atli Kristjánsson var varamaður. Liðsstjóri liðsins og þjálfari er Lenka Ptácníková. Álfhólsskóli hefur á síðustu árum lagt mikla áherslu á að bjóða nemendum skólans upp á skákkennslu og uppsker nú ríkulega. Skáksveit skólans varð Íslandsmeistari barnaskólasveita sl. 2 ár og er nú Norðurlandsmeistari eftir að hafa lent í 2. sæti á mótsins á síðasta ári. Að baki þessum árangri er þrotlaus vinna þeirra barna og ungmenna sem sveitina skipa auk þjálfara þeirra bæði hjá Álfhólsskóla, Skákskóla Íslands og þeirra taflfélaga sem þeir tilheyra auk annarra aðila sem leggja á sig mikið ósérhlífið starf til að styrkja skákina á Íslandi. Í sveit Álfhólsskóla er mikill og góður efniviður og það verða nú áframhaldandi hlutverk skólans og Skáksambands Íslands að vinna áfram úr þessum efnilega hópi. Frekari upplýsingar um mótið auk myndaalbúms er að finna á skak.is 
Hér er einnig slóð á frétt af viðburðinum á RÚV.IS  
Posted in Fréttir.