skolathing1

Heimsókn 10. SHK á Skólaþing

skolathing1Á Skólaþingi fara nemendur efstu bekkja grunnskóla í hlutverkaleik og fylgja í stórum dráttum reglum um starfshætti Alþingis. Nemendurnir fá tækifæri til að setja sig í spor þingmanna með því að leiða fyrir fram ákveðin málefni sem fyrir þá eru lögð til lykta á þingflokksfundum, nefndarfundum og þingfundum. Jafnframt hlusta þeir á og meta rök sérfræðinga sem kallaðir eru til til að veita þingmönnum ráðgjöf. Þannig er ætlunin að veita innsýn í sambandið milli atburða í samfélaginu, skoðanamyndunar, pólitískra ákvarðana og starfa Alþingis og sýna áhrif almennings, sérfræðinga, fjölmiðla og hagsmunaaðila á löggjafarstarfið. Nemendur eiga að komast að lýðræðislegri niðurstöðu með því að hlusta á og meta rök og álit annarra, tjá eigin skoðun og taka afstöðu. Heimsóknin gekk mjög vel og höfðu krakkarnir gaman af því að setja sig í spor þingmanna. Hinir 10.bekkirnir fara svo í næstu viku.
Posted in Fréttir.