Starfsáætlun

Samkvæmt 29. gr. grunnskólalaga ber hverjum grunnskóla að gefa út skólanámskrá og starfsáætlun.
Skólastjóri er ábyrgur fyrir gerð þeirra og skal semja þær í samráði við kennara. Skólanámskrá er nánari útfærsla á aðalnámskrá grunnskóla um markmið, inntak náms og námsmat, starfshætti og mat á árangri og gæðum skólastarfs. Skólanámskrá tekur mið af sérstöðu grunnskóla og aðstæðum og skal endurskoða reglulega.

Starfsáætlun hver skólaárs er einn lykilþáttur skólanámskrár.

Í árlegri starfsáætlun er m.a. gerð grein fyrir stjórnskipulagi skólans, skóladagatali, þ.m.t. lengd jólaleyfis, páskaleyfis og annarra vetrarleyfa, starfsáætlun nemenda, skólareglum, fyrirkomulagi kennslu, stoðþjónustu, félagslífi og öðru því sem varðar starfsemi skólans ár hvert. Þar skal birta upplýsingar um starfslið skólans, stjórnkerfi, mögulegan stuðning fyrir nemendur og almennar, hagnýtar upplýsingar um skólahald hvers skólaárs. Starfsáætlun skóla skal árlega lögð fyrir skólanefnd til staðfestingar sem staðfestir gildistöku þegar ljóst er að hún hafi verið unnin í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá, kjarasamninga og ákvarðanir sveitarstjórnar um fyrirkomulag skólahalds.

Starfsáætlun skólaársins 2024 – 2025

Starfsáætlun skólaársins 2023 – 2024

Starfsáætlun skólaársins 2022 – 2023

Starfsáætlun skólaársins 2021 – 2022

Starfsáætlun skólaársins 2020 – 2021

Starfsáætlun skólaársins 2019 – 2020

Starfsáætlun skólaársins 2018 – 2019

Starfsáætlun skólaársins 2017 – 2018 

Starfsáætlun skólaársins 2016 – 2017

Starfsáætlun skólaársins 2015 – 2016

Starfsáætlun skólaársins 2014 – 2015

Starfsáætlun skólaársins 2013 – 2014

Starfsáætlun skólaársins 2012 – 2013