Nýjustu fréttir
Bókasafnsdagurinn 14. apríl
Í ár var ákveðið að hvetja alla til frekari bóklesturs og halda bókasafnsdag. Hann verður haldinn hátíðlegur 14. apríl á öllum bókasöfnum landsins, jafnt Háskóla-bókasafni – Landsbókasafni sem skólasöfnum grunnskólanna. Slagorð dagsins er Bókasafn – heilsulind hugans. Hvernig væri nú að […]
Rithöfundarnir Þórarinn og Sigrún Eldjárn í heimsókn
Nemendur á miðstigi hófu vikuna á menningarveislu þegar rithöfundarnir Þórarinn Eldjárn og Sigrún Eldjárn komu í heimsókn. Nemendur 5. bekkja sungu lagið „Álfar“ eftir Magnús Sigmundsson og kváðu síðan stemmuna „Úti um nótt“ eftir Þórarin Eldjárn fyrir okkur og gesti skólans.
Landnámssýning 5. bekkjar
Að vanda héldu 5. bekkirnir landnámshátíð í skólanum. Nemendur leiklistarhóps og tónlistarhóps hófu sína raust með leiksýningu og tónlistarflutningi. Aðrir hópar sýndu verk sín sem voru landnámsspil, rúnastafir úr leir, búningar o.fl. Heimilisfræðihópur bauð uppá lummur sem þóttu með afbrigðum góðar. […]
Álfhólsskóli í öðru sætinu
Íslandsmót barnaskólasveita í skák fór fram um helgina. Að loknum fyrri keppnisdegi voru heimamenn í a-sveit Rimaskóla með nauma forystu á Álfhólsskóla – áður Hjallaskóla og Digranesskóla, og báru þessar sveitir af öðrum sveitum. Sveitirnar höfðu mæst í 5. umferð og […]
Fréttatilkynning
Óskum eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2011Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, verða afhent í 16. sinn við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 24. maí næstkomandi. Heimili og skóli – landssamtök foreldra óska eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2011 frá einstaklingum, félögum eða hópum […]
Dagur barnabókarinnar
Alþjóðlegur dagur barnabókarinnar er haldinn hátíðlegur 2. apríl ár hvert á fæðingardegi H.C. Andersen. Að þessu sinni ber daginn upp á laugardag og því mun IBBY á Íslandi halda upp á hann strax fimmtudag 31. mars þegar frumflutt verður smásaga eftir Kristínu […]