Síðasta leik- og tónlistarsýning vetrarins var frumsamið leikverk með frumsaminni tónlist og skreytt sviðsmynd frá myndmenntarhópnum. Verkið var unnið upp úr þjóðsögum um nykur sem hefst við í fjallavötnum og narrar börn til að setjast á bak sér en steypir sér svo með þau niður í hyldýpið. Sýningin tókst afar vel, margir foreldrar mættu og fóru allir glaðir heim. Hér má sjá myndir úr sýningunni.