Heilsudagarnir í Álfhólsskóla tókust með afbrigðum vel. Boðið var uppá tilbreytingu frá hinu hefðbundna skólastarfi. Nemendur fengu á þessum dögum sérstaka dagskrá tengd heilsueflingu eða hollustu mismunandi eftir árgöngum. Nokkrir hópar fóru á skauta, aðrir lærðu um skyndihjálp, sumir tóku þátt í Álfhólsskólaleikum og enn aðrir undirbjuggu árshátíð. Boðið var uppá danskennslu, nemendur grilluðu skógarbrauð og sætar kartöflur þannig að það höfðu allir eitthvað skemmtilegt við að vera. Sjá má á þeim myndum sem teknar voru að nemendur og starfsfólk höfðu virkilega notið þessara heilsudaga.