A-sveit Álfhólsskóla vann til bronsverðlauna á Íslandsmóti stúlknasveita í skák sem fram fór laugardaginn 5. febrúar 2011. Tvær af fjórum stúlkum sveitarinnar, Tara Sóley og Sonja María, voru í liði Hjallaskóla sem vann mótið í fyrra (Ástu Sonju og Ástu Sóleyjar, sem einnig skipuðu sigurliðið 2010, var sárt saknað), en hinar tvær, Karen Ýr og Lilja Andrea, voru að taka þátt í sínu fyrsta alvöru móti utan skólans. Ekki slæmur árangur að byrja ferilinn með medalíu á Íslandsmóti! Skólinn sendi líka B-sveit skipaða ungum stúlkum úr 2. og 3. bekk sem flestar eru nýlega byrjaðar að æfa, en þær stóðu sig mjög vel og eiga sannarlega framtíðina fyrir sér.
Úrslit:
- Rimaskóli 23 vinningar
- Engjaskóli A 16
- Álfhólsskóli A 14
- Salaskóli 14
- Árbæjarskóli 12,5
- Engjaskóli B 12,5
- Hörðuvallaskóli 9,5
- Smáraskóli 9
- Kársnesskóli 6,5
- Álfhólsskóli B 3
Sveit Álfhólsskóla
1. borð Tara Sóley Mobee
2. borð Sonja María Friðriksdóttir
3. borð Karen Ýr Sigurbjörnsdóttir
4. borð Lilja Andrea Sabrisdóttir
Liðsstjóri: Smári Rafn Teitsson
Nánar um mótið má lesa á skak.is og þar eru einnig myndir.
Kveðja,
Smári Rafn Teitsson