Reglur um snjalltækjanotkun

Snjalltækjareglur Álfhólsskóla

  1. Kennarar stýra snjalltækja notkun í kennslustundum.
  2. Engin snjalltæki í frímínútum, á göngum, matsal eða í álmu, hvorki spjaldtölvur né símar.
  3. Símar, símaúr eða önnur persónuleg snjalltæki allan skóladaginn á hljóðlausri stillingu þar sem þeir trufla ekki.
  4. Nemendur á unglingastigi mega nýta spjaldtölvur til náms í frítíma sínum á bóksafni. Ekki er heimilt að spila tölvuleiki, fara á samfélagsmiðla eða þess háttar á safninu. Geri nemandi það á hann á hættu að vera vísað út af safninu og/eða spjaldtölvan sé tekin af honum tímabundið. Skólinn áskilur sér rétt til þess að draga leyfi til spjaldtölvunotkunar á safninu til baka ef þurfa þykir.
  5. Skólinn tekur ekki ábyrgð á símum né öðrum verðmætum.

Auk þess gildir almennt:

  • Spjaldtölvur eru lokaðar í upphafi kennslustundar.
  • Spjaldtölvur eru lokaðar á göngum.
  • Heima er notkun spjaldtölvu á ábyrgð foreldra en þeir geta óskað eftir að nemendur geymi spjaldtölvur alfarið í skólanum.
  • Við virðum aldurstakmörk á samskiptamiðlum og öðrum forritum.

Um viðurlög við brot á reglum um notkun á spjaldtölvum vísast til viðlaga um brot á skólareglum.

Viðurlög vegna brota á snjalltækjareglum.

  1. Nemandi beðinn um að setja símann niður. Skráð brot á snjalltækareglum í Mentor ef í kennslustund.
  2. Ef síminn er aftur tekinn upp þrátt fyrir áminningar eða ef nemandinn fer ekki eftir fyrirmælum um að setja símann niður er hann gerður upptækur og geymdur út skóladaginn hjá ritara. Foreldrar og umsjónarkennari upplýstir.
  3. Ef síminn hefur ítrekað verið gerður upptækur fundar umsjónarkennari með foreldrum og nemanda. Óskað eftir að foreldrar sæki símann til ritara í lok dags ef vandinn heldur áfram.
  4. Ef fyrrnefnd viðurlög hafa ekki skilað árangri er fundur með foreldrum, umsjónarkennara og stjórnanda. Óskað eftir að síminn sé alfarið geymdur heima.

Símafrí hjá Kópavogsbæ

Símafríið nær til allra nemenda og starfsfólks skólans auk þess sem við biðjum foreldra og/eða forráðamenn um að virða símafríið þegar þeir koma í skólann.

Kynningarefni til foreldra vegna fyrirkomulags símafrís