Fáránleikar voru haldnir í Álfhólsskóla. Miðstigið þreytti ýmsar þrautir og var innbyrðiskeppni milli liða. Liðin fengu stig fyrir frammistöðu og prúðleika. Ýmsar þrautir þurftu liðin að leysa og voru allir samtaka um að vinna nammisjóðinn. Í boði var að fara í pílukast, borða sykurpúða, þreyta þríburahlaup og fleira skemmtilegt. Allir virkir og skemmtu sér vel. Búningar skrautlegir og fjölbreyttir. Hér eru myndir af deginum.