![](http://lsk.kopavogur.is/alfholsskoli/wp-content/uploads/sites/5/2014/01/hondihonddigra.jpg)
Á haustönn 2013 stóð Kvennakór Kópavogs fyrir styrktartónleikunum Hönd í hönd, sem er orðinn árlegur viðburður hjá þeim. Tónleikarnir fóru sem fyrr fram í Digraneskirkju og lögðu fram vinnu sína ýmsir frábærir listamenn. Skólakór Álfhólsskóla kom þar einnig fram undir stjórn Þórdísar Sævarsdóttur kórstjóra, og var glatt á hjalla og skemmtilega stund fyrir alla, bæði áhorfendur og listamenn. Hérna eru
myndir af viðburðinum.