Vináttudagurinn 2024

Vináttudagurinn í Álfhólsskóla var haldinn hátíðlegur föstudaginn 8.nóvember en dagurinn er einnig baráttudagur gegn einelti.

Dagskráin hófst með því að vinabekkir hittust, spjölluðu og föndruðu saman lyklakippur í heimastofum, ýmist í Digranesi eða Hjalla.

Að því loknu sóttu vinabekkirnir leikskólabörn af leikskólum í nágrenninu og saman gengu þau fyrir vináttuna og gegn einelti í íþróttahúsið í Digranesi. Þar tók við hátíðardagskrá. Nemendur voru með dansatriði og bæði leik- og grunnskólanemendur sungu nokkur lög saman. Öllum nemendafulltrúum í réttindaráði ÖSE (Öll sem eitt) var boðið út á gólf og þeim þakkað fyrir sín störf með lófaklappi. Að því loknu voru nemendur í 10.bekk með skemmtiatriði.

Í lok dagsins unnu nemendur að ýmsum vináttutengdum verkefnum en á unglingastiginu voru haldnir skólamenningarfundir. Markmið dagsins hélt og samstaðan gegn einelti í Álfhólsskóla hélt eins og endranær.

Fleiri myndir má finna á facebook síðu Álfhólsskóla

Posted in Fréttir.