Breyttur opnunartími skrifstofu

Gleðilegt ár og takk fyrir samstarfið á liðnum árum.

Opnunartími skrifstofu skólans hefur tekið breytingum á nýju ári. Skrifstofan er opin frá kl. 08:00 – 14:00.
Ritari tekur aðeins á móti símtölum á þessum tíma.

Jafnframt hefur verið opnað fyrir þann möguleika á Mentor að sækja um leyfi í eina kennslustund í senn.

Við hvetjum fólk til þess að tilkynna veikindi og styttri leyfi í gegnum Mentor og minnum á að sé nemandi í heilan dag eða lengur í leyfi þarf áfram að tilkynna leyfið á þar til gerðu eyðublaði á heimasíðu skólans.

Posted in Fréttir.