Netskákmót

Ágætu foreldrar,

Kópavogsbær ætlar að vera með skáknetmót fyrir alla krakka á grunnskólaaldri alla laugardaga klukkan 11:00 frá 17. október til 12.desember.

Við hvetjum ykkur til að benda ykkar börnum á að taka þátt á skákmótunum.

 

Hér eru skrefin sem þarf að fara í gegnum til þess að taka þátt (mjög einfalt):

  1. Búa til aðgang á www.chess.com (frítt)
  1. Gerast meðlimur í hópnum “Kópavogur-skólar”: hhttps://www.chess.com/club/kopavogur-skolar
  2. Skrá sig á mótin sem hægt er að gera allt að 60 mínútum áður en þau hefjast.
    Mótin verða einnig auglýst á forsíðu hópsins inná chess.com.

    Alla laugardaga 11:00-12:00 (Teflt í 60 mínútur):
    https://www.chess.com/live#r=529356 (Tengill gildir fyrir mótið þann 17. október tenglar verða uppfærðir inná á forsíðu Kópavogur-skólar á chess.com vikulega.)

Mælum með að þið notið borðtölvu/fartölvu. Chess.com appið virkar ekki á mótum.

 

Með von um góðar viðtökur!

Menntasvið Kópavogsbæjar

 

Posted in Fréttir.