Blár apríl!

Styrktarfélag barna með einhverfu stendur fyrir Bláum Apríl, árlegu vitundarátaki um einhverfu.

Átakið miðar að því að fræða og upplýsa almenning um einhverfu og auka þannig skilning, viðurkenningu og samþykki á því sem er “út fyrir normið”. Því öll erum við einstök og höfum okkar styrkleika og veikleika og það á við um einhverfa eins og alla aðra. Einhverfa er alls konar! Því vonum við að sem flestir sýni lit með því að klæðast bláu á bláa daginn á morgun, þriðjudag, og styrkja einhverf börn.

Fögnum fjölbreytileikanum! Því lífið er blátt á mismunandi hátt.

Undanfarin ár hafa margir brugðið á það ráð að setja myndir á instagram og facebook merktar #blarapril sem hefur gætt daginn skemmtilegum blæ og hjálpað til við að breiða út þennan jákvæða boðskap.

Hér má sjá stutt fræðslumyndband um einhverfu

 

Posted in Fréttir.