Í gær voru menntabúðir #Kopmennt haldnar í Álfhólsskóla.
Menntabúðir #kopmennt eru haldnar einn mánudag í mánuði í grunnskólum Kópavogs. Kennarar frá öllum skólastigum og áhugafólk um menntamál eru hjartanlega velkomin að sækja búðirnar með okkur.
Markmið menntabúða #Kopmennt eru að:
- Miðla þekkingu og reynslu – Læra hvert af öðru.
- Skapa samstarfsvettvang sem snýr að starfsþróun og símenntun.
- Fá utanaðkomandi aðila til að koma með kynningu á nýjungum í skólastarfi sem lærdómssamfélagið kemur sér saman um að vilja kynna sér betur.
- Styðja við og styrkja lærdómssamfélagið sem þegar hefur myndast í skólanum
Það var metskráning, rúmlega 120 manns, þrátt fyrir snjó og landsleik! Við erum sérstaklega stolt af því að 11 vinnubúðir af 12 voru í umsjón kennara frá okkur í Álfhólsskóla. Þetta var ákaflega vel heppnað og fóru vonandi allir heim með nýjar hugmyndir og fróðleik.
Á facebooksíðu skólans má finna myndir frá menntabúðnum.