Norræna skólahlaupið 2017 í Álfhólsskóla

Norræna skólahlaupið fór fram í Álfhólsskóla í dag.  Nemendur yngsta og miðstigs hlupu fyrst og unglingastigið síðast.  Gott veður var í hlaupinu og var þátttaka mikil hjá nemendum og starfsfólki skólans.  Hlaupið fór fyrst fram á Íslandi árið 1984, en allir grunnskólar á Norðurlöndunum geta tekið þátt í hlaupinu á hverju hausti.
Með Norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Í ár er hlaupið styrkt af verkefninu European Week of Sport og af því tilefni verða þrír skólar sem lokið hafa hlaupi fyrir 30. september 2017 og skilað inn upplýsingum til ÍSÍ dregnir út og geta unnið 100.000 króna inneign í Altis sem selur vörur til íþróttaiðkunar.  Frábært hlaup og fínir sprettir hjá okkar nemendum.  Hér eru nokkrar myndir úr hlaupinu í Álfhólsskóla.
Posted in Fréttir.