8. bekkur í Búrfellsgjá

Síðastliðinn þriðjudag fóru nemendur 8. bekkja skólans í Búrfellsgjá. Þetta var flottur dagur og veðrið var einstakt.  Skoðuðum við réttina, hellisskútana og sumir nemendur komust svo langt að kíkja á sjálfan gíg Búrfells.  Einstök fegurð og stórbrotið útsýni í nágrenni Kópavogs. Allir nutu þess að hefja starf vetrarins á góðri og hressri göngu í fallegri náttúru.  Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru af hópnum og náttúrudýrðinni.
Posted in Fréttir.