![](http://lsk.kopavogur.is/alfholsskoli/wp-content/uploads/sites/5/2016/04/IMG_0467.jpg)
Við buðum 7.bekkingum í vatnslitamálun á dögunum. Fórum við út í góða veðrið með liti og striga sem nemendurnir höfðu smíðað í Hönnun smíði. Myndefnið var Ég og náttúran. Vettvangurinn var Fossvogsdalurinn og umhverfi hans. Vissulega kom Esjan sterk inn í myndirnar en bros og gleðin skein úr hverju andliti í þessari vinnu. Hér eru nokkrar
myndir úr útikennslustundinni okkar.