Fagrabrekka í tónmenntatíma

Elstu nemendur Fögrubrekku komu í heimsókn í tónmenntatíma hjá 1. bekk.  Þetta hefur orðið árleg heimsókn og eru oft fagnaðarfundir þegar gamlir félagar hittast, bæði eldri og yngri.  Þar hefur verið sungið fyrir hvort annað, farið í leiki, leikið á hljóðfæri og dansað saman. Í þetta skiptið enduðum við á að dansa saman refadans eins og má sjá glögglega á myndunum J  Hér eru nokkrar myndir frá heimsókninni.
Posted in Fréttir.