Öskudagsgleði í Álfhólsskóla var haldin hátíðleg í dag 18.febrúar 2012. Mjög öflug dagskrá var skipulögð á ýmsu stigum skólans. Fáránleikar fóru fram á unglingastigi þar sem nemendur öttu kappi í limbó, bimbó, teygjubyssuskotfimi svo eitthvað sé nefnt. Á miðstiginu var dans, leikir og gleði íþróttahúsinu. Á yngsta stiginu var áherslan lögð á dansa og leiki ásamt því sem kötturinn var sleginn úr tunnunni. Nemendur og starfsfólk mættu að sjálfsögðu í öskudagsbúningum í skólann. Foreldrafélagið gaf síðan öllum nammi eftir daginn. Allir skemmtu sér vel að vanda og krökkunum síðan sleppt í nammi og söng út í bæ.