Í dag mánudag og morgun þriðjudag 14. og 15. nóvember eru þemadagar í Álfhólsskóla þar sem við höllum okkur dálítið að raungreinunum með verkefni. Þessa tvo daga mæta allir nemendur kl. 8:10 og verða í þemabundnum verkefnum til kl. 13:10. Ekki er um skerta daga að ræða þannig að eftir það verður kennsla samkvæmt stundaskrá. Við höfum þann háttinn á að brjóta upp bekkjardeildir og raða í hópa þvert á árganga innan stigs.
Ýmislegt skemmtilegt verður á döfinni þessa daga, m.a. koma læknanemar og verða með kynfræðslu á unglingastigi og sömuleiðis verður svokallað stjörnutjald á mið- og unglingastigi. Farið er fram á að þeir nemendur í bekkjardeildum sem samkvæmt stundatöflu eiga ekki að mæti í fyrsta tíma mæti eigi að síður kl. 8:10. Verður þeim bætt þetta upp með því að þeir sleppa tíma síðar.“
Kveðja
Skafti