Fótboltamót 7. bekkja fór fram í Fífunni 22.02.2011. Álfhólsskóli tók að sjálfsögðu þátt og sendi bæði stráka- og stelpulið. Frammistaða krakkanna var með ágætum þó að flestir hefðu náttúrulega viljað ná í bikarinn. Við höfðum gaman að því að taka þátt og fá að spreyta okkur við hina skólana. Miðað við síðustu fréttir þá urðu strákarnir í þriðja sæti en stelpurnar í aðeins neðra sæti en þau hafa lofað því að gera betur á næsta móti. Gleðin skín úr hverju andliti eins og sjá má á myndunum.