5blandnam1

Sýning um landnámið

5blandnam1Sýning númer tvö hjá 5.bekkingum í list- og verkgreinatíma í dag tókst með ágætum. Klukkan 10:30 hófst opin æfing í salnum í leiklist og tónlist. Þar sem 5. bekkur lærir um landnám Íslands í vetur hefur orðið úr að vinna með landnámið að einhverju leyti í öllum list- og verkgreinunum.Umsjónar/bekkjarkennarar leggja inn efnið samkvæmt kennsluáætlun.

Í leiklist búa þau til leikrit sem þau leika, tónlistarhópurinn flytur tónlist og leikhljóð í sýningunni, í smíði búa þau til landnámsspil og steypa tinskart á búninga, í textílmennt búa þau til sína eigin búninga, í myndmennt vinna þau að leikmynd þegar það hentar og í heimilisfræði búa þau til mat sem talið er að landnámsmenn hafi borðað. Krakkarnir stóðu sig að vanda vel og voru mjög áhugasöm.  Stefnt er að því að hafa opna tíma / sýningar / heimboð í lok allra lotanna í vetur og hátíð í maí þegar krakkarnir ykkar verða orðnir sérfræðingar í landnáminu. Myndir af sýningunni.

 

http://www.flickr.com/apps/slideshow/show.swf?v=71649

Posted in Eldri fréttir.