Landnámshátíð 2026

Miðvikudaginn 20.maí fór fram árleg landnámshátíð 5. bekkjar á Víghól, en nemendur hafa verið að vinna að samþættum verkefnum um landnám Íslands í samfélagsfræði, list- og verkgreinum.  Gengið frá Hjalla að Víghól þar sem Árni smíðakennari leiddi skrúðgönguna á hestbaki. Þegar þangað var komið hófst fjörið. Nemendur skiptust á að fara í  reiðtúra, föndra hálsmen og spila Kubb. Einnig fengu nemendur að bragða á lummum og harðfisk. Blíðskapa veður lék við nemendur allan daginn – sannkölluð uppskeruhátíð í anda landnámsins!

Fleiri myndir má sjá á facebook síðu skólans – HÉR

Posted in Fréttir.