Kópurinn, viðurkenning menntaráðs Kópavogs fyrir framúrskarandi grunnskóla- og frístundarstarf í Kópavogi

Í gær hlutu sjö framúrskarandi verkefni „Kópinn“, viðurkenningu menntaráðs Kópavogs fyrir framúrskarandi grunnskóla- og frístundastarf í Kópavogi.
Alls bárust 35 tilnefningar um 34 verkefni til menntaráðs og voru veittar viðurkenningar fyrir sjö verkefni sem þóttu fela í sér umbætur eða leiða til framfara í skóla og frístundastarfi.
Við í Álfhólsskóla getum stolt sagt frá því að Hera Thai Ha Nguyen, stærðfræðikennari í Álfhólsskóla hlaut viðurkenningu fyrir verkefnið Markviss notkun ThatQuiz og OneNote í stærðfræðikennslu á unglingastigi og einhverfudeild. Við óskum Heru okkar innilega til hamingju með viðurkenninguna.
Einnig er gaman að greina frá því að þó nokkur verkefni í Álfhólsskóla hlutu tilnefningu í ár.
Verkefnin eru:
* Skapandi valgreinar á mið- og unglingastigi
* Markviss list- og verkgreinakennsla á unglingastigi
* Starfamessa Álfhólsskóla
* Bókaklúbbar skólasafnsins
* Góðgerðarvika Álfhólsskóla
Við erum sannarlega stolt af því gróskumikla, faglega og skapandi starfi sem unnið er í skólanum okkar alla daga.
Posted in Fréttir.