Nemendur í 7.bekk tóku þátt í fótboltamóti 7.bekkja í Kópavogi. Mótið var vel heppnað og skemmtu sér allir vel. Strákarnir okkar sigruðu sinn riðil og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn. Nemendur sýndu íþróttamannslega framkomu, stóðu sig með prýði og voru skólanum og sjálfum sér til sóma, innan vallar sem utan.