Á vordögum tókust 6. bekkir ferð á hendur og héldu í Reykholt og heimsóttu slóðir stórskáldsins og höfðingjans Snorra Sturlusonar. Nemendur fengu fróðlegan fyrirlestur hjá Séra Geir Waage í Snorrastofu og kirkjunni um líf fólks á miðöldum. Veðrið var frekar rysjótt því finna mátti fyrir snjóflygsum í rokinu. Ferðinni lauk með sundspretti í lauginni í Borgarnesi.
Daginn eftir var haldið hjólandi í Nauthólsvík þar sem veðrið lék við mannskapinn. Sólin skein og hitinn var öllu meiri heldur en deginum áður í Reykholti. Hér eru myndir af þessum skemmtilegu dögum.
Daginn eftir var haldið hjólandi í Nauthólsvík þar sem veðrið lék við mannskapinn. Sólin skein og hitinn var öllu meiri heldur en deginum áður í Reykholti. Hér eru myndir af þessum skemmtilegu dögum.